12.6.2025 | 09:13
Svona á ekki að gera.
"Úttekt Verkís á burðarvirki SFV fékk Verkís hf. til að skoða ástand burðarvirkis húsanna við Kleppsveg 150 og 152 sem skilaði skýrslu dags. 8. júní 2024. Niðurstaðan var sú að breytingar sem gerðar voru á plötu yfir kjallara voru taldar minni háttar og hafi ekki áhrif á eiginþyngd. Framkvæmdir við leikskólann fólu hins vegar í sér að sett var ásteypulag og torf á þök húsanna. Þessi viðbótarþungi, eigið álag sem er liðlega tvöfaldað, sé mun meira en þakplöturnar hafi verið hannaðar fyrir og því umfram burðargetu þaka. Einnig kemur fram að ekki hafi verið gerð skoðun á þoli bygginga gagnvart jarðskjálfta en aukin þyngd þaka eykur þá áraun verulega. Þolhönnunarstaðlar, meðal annars um jarðskjálfta, sem gilda í dag eru strangari en það sem gilti þegar húsin voru byggð árið 1967. Niðurstaða Verkís var að ákvæði byggingarreglugerðar um byggingarleyfisskyldar framkvæmdir geri kröfu um að viðkomandi mannvirki uppfylli gildandi þolhönnunarstaðla og geti með öryggi staðist það álag sem þau kunni að verða fyrir. Niðurstaða Verkís var að þetta ákvæði væri ekki uppfyllt." !!