Frelsum Mývatn

Félagi minn Ingólfur Ásgeir bendir á hversu mikilvægt er að vega og meta umferð ferðamanna með viðkomu við Mývatn gagnvart gegnumstreymisumferð.

 Ég legg til að gerður verði vegur norðan Másvatns, á nýrri glæsilegri brú á Laxá og síðan vel norðan Mývatns inn á Kísilgúrveginn rétt þar sem nú eru vegamót.  Á þennan hátt myndi Mývatn verða nánast laust við þungaumferð og slík leiðindi.  Samtímis myndi leiðin milli Fnjóskadals og Jökuldals styttast um þetta 9 til 10 kílómetra, sem er umtalsvert og skiptir íbúa miklu máli.

Ég er meintur fagmaður í reikningi og hönnun og bíð spenntur eftir skýrslu um staðsetningu á miðstöð innanlandsflugs. 

Samgöngumiðstöð ætti að vera austan við (nær Rvík og á gamla varnarsvæðinu...) flugbrautina í Keflavík hverja utanlandsflugstöðin stendur við.  Á milli væri stutt lestarferð eins og á Stansted, ma af öryggisástæðum ofl.  Ríkisspítalann ætti að staðsetja við Vífilsstaði osfrv. 

Í leiðinni má nefna að hafin er bygging 16000 fermetra blýantsnagarageymslu við Smáratorg, -hver nagari þarf um 25 fermetra svo þarna má hýsa 640 starfsmenn!  Síðustu ár hafa orðið til 900 störf hjá hinu opinbera, ekkert utan höfuðborgarsvæðisins (fyrir utan Landbúnaðarstofnun...).

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband