Forn, ferskur og fær Kjalvegur

 

Kjalvegur og ferðaþjónusta á Norðurlandi

Ferðaþjónusta er sú atvinnugrein sem vex hvað hraðast á Íslandi og er einnig teflt fram sem mótvægi við uppbyggingu stóriðju því fjárfesting bak við hvert starf í ferðaþjónustu virðist við fyrstu sýn mun minni en við hvert starf í stóriðju.  Ferðaþjónusta byggir algerlega á góðum samgöngum og virðist stundum gleymast hversu mikilvægt er að allir innviðir samfélagsins séu vel frambærilegir á þeim svæðum sem ferðaþjónusta á að þrífast.  Ef innviðir eru skornir við nögl er óvíst að fjöldi ferðamanna sé nægilegur svo rekstur ferðaþjónustufyrirtækjanna sé arðbær, hvað þá í samanburði við áhættulítinn rekstur eins og stóriðju sem til að mynda er ónæmur fyrir árstíðabundnum sveiflum.

Samgönguáætlun er því verkfæri sem stuðlar beint að fjölgun starfar og auknum arði í ferðaþjónustu.  Fyrir íbúa landsbyggðarinnar skiptir gríðarlega miklu máli að samgönguáætlun sé miðuð að einhverju leyti við þarfir ferðaþjónustunnar.  Skýrt dæmi um gildi samgangna fyrir ferðaþjónustu má lesa af myndinni, sem er gerð eftir gögnum frá Hagstofu Íslands.

Gistinætur2002_2006

Á myndinni sjást áhrif stóriðjuframkvæmdanna á Austurlandi (AL) og einnig má sjá að Norðurland (NL-V og NL-E) ber skarðan hlut frá borði, en hlutfallslega hefur fjölda gistinátta á Norðurlandi fækkað um tæp 20% á fimm ára tímabili.  Flestir munu sammála um að gildi ferðaþjónustu fyrir blómlegt atvinnulíf á ákveðnum landssvæðum tengist fjölda gistinátta, því hlýtur áhugi á bættum samgöngum við Norðurland að kvikna.

Það augljósa verkefni sem lenging Akureyrarflugvallar er, hefur af einhverjum ástæðum verið haldið í heljargreipum aðgerðaleysis af hálfu forystumanna sveitarstjórna og ekki síður fulltrúa okkar á Alþingi.  Vaðlaheiðargöng eru annað þjóðþrifaverk sem mikið er spjallað um, en hefur fallið í skugga jarðgangnagerðar til Héðinsfjarðar.  Bæði verkefnin eru á samgönguáætlun í mýflugumynd sem er einfaldlega óásættanlegt fyrir þróun atvinnulífs og samfélags á Norðurlandi.

Ein þeirra tillaga sem horfir til framfara í samgöngumálum er nýgamall Kjalvegur, milli Skagafjarðar og uppsveita Árnessýslu, en ekki síður liggur hann milli ferðaþjónustukjarnanna Mývatns og Gullfoss/Geysi.  Einnig styttir nýr Kjalvegur leiðir milli byggðakjarna á Norður- og Austurlandi, svo sem Akureyrar, Húsavíkur og Egilsstaða, og á Suðurlandi, svo sem Selfoss og Reykjavíkur.  Samkvæmt Rannsóknastofnun Háskólans á Akureyri er ábati af verkefninu um 5,6 til 6,0 milljarðar króna miðað við 6% arðsemiskröfu og að auki minnkar mengun og umferðaröryggi eykst.  Í úttekt RHA er þó ekki metin bein eða óbein áhrif á ferðaþjónustu vegna nýrra möguleika sem fylgja fjárfestingu í samgöngumannvirkjum sem nýr Kjalvegur er, heldur einungis tiltekinn óskilgreindur ábati nýrra ferðamanna.  Einnig er áhrif á umhverfi lítt metin til fjár, sem er sjálfsagt raunhæft ef litið er á nýjan Kjalveg sem endurbyggingu á núverandi Kjalvegi með sögulegri skírskotun.  Ég hvet lesendur til að kynna sér málið og vonandi styðja það með ráðum og dáð að því loknu, því Norðlendingar þurfa á því að halda. 

Bjarni P. Hjarðar er verkfræðingur og starfar við HA

Gistin_2005

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband